perjantaina, heinäkuuta 14, 2006

...and now for something completely different
Já það hlaut að koma að því. Í tilefni flutninga ætla ég að dömpa þessu bloggi og færa mig hingað: www.prinsatun.wordpress.com. Uppsetning og lúkk er enn í vinnslu.
Við Geir verðum líklega með sameiginlegt forræði yfir nýja blogginu svo að ef það koma einhverjar leiðinlegar færslur þá er það honum að kenna.

maanantaina, syyskuuta 29, 2003

Farvel blogg
Bara prófa hvort það er farið

maanantaina, syyskuuta 22, 2003

Ashes to Ashes

Hef ég nú endanlega ákveðið að slútta þessu bloggi, nema þá kannski ég hendi við og við inn nokkrum prófum og geymi þau gömlu fyrir samfíkla mína (Ösp, nafngreini þig því það les þetta hvort eð er enginn annar...hahahaha).

Ta ta.

torstaina, syyskuuta 11, 2003

Nerdy perdy...
Quark
Quark -- You are subtle and mysterious and people
know very little about you. You like hanging
out with small groups of friends (usually 3)
who you are very close to. You are usually
friends with other quarks like yourself.


What kind of subatomic particle are you?
brought to you by Quizilla
So true...

My inner child is sixteen years old today

My inner child is sixteen years old!


Life's not fair! It's never been fair, but while
adults might just accept that, I know
something's gotta change. And it's gonna
change, just as soon as I become an adult and
get some power of my own.


How Old is Your Inner Child?
brought to you by Quizilla

keskiviikkona, syyskuuta 03, 2003

tiistaina, elokuuta 26, 2003


You're Debra Messing...you're fresh, new and you
love to hang out with your Will and Grace
Cast...You start the trends and never apologize
for being you....you go girl!


What actress are you?
brought to you by Quizilla

maanantaina, elokuuta 25, 2003

Bara í Hafnarfirði...
Þetta fann ég á blogginu hennar Sunnu nágranna. Alveg geggjað fyndið hvað gerist í hverfinu mínu stundum. Hvað haldiði að maðurinn sé að gera??? Uppástungur vel þegnar í kommentakerfið en munið það er svindl að kíkja fyrst á Sunnusíðu því rétt svar er þar að finna.

torstaina, elokuuta 14, 2003

sunnuntaina, elokuuta 10, 2003

The Story of my Life

when harry met sally
Everyone remembers the 'faked-orgasm-in-a-deli'
sequence from your kind of movie When Harry Met
Sally. It seems that you're falling for a buddy
or have already fallen for them. Uh-oh. You're
probably caught between the possibility of
having a great relationship and wrecking the
one you have now. You know what they say, it's
better to regret something you did than
something you didn't do.


What Romance Movie Best Represents Your Love Life?
brought to you by Quizilla

Ég virðist alla vega vera með svipað hár og hún...gæti gengið veit ekki :p

torstaina, elokuuta 07, 2003

Eins og rispuð plata...

revolver
Revolver


Which Beatles Album Are You?
brought to you by Quizilla




perjantaina, elokuuta 01, 2003

Þökkum Guði fyrir aukna löggæslu á útihátíðum
...sem veldur því að miðaverð hækkar og ég hef afsökun fyrir því að kaupa dýrari föt...seisei já.

lauantaina, heinäkuuta 26, 2003

Tiltektarmömmur

Ég vil byrja á því að tileinka Palla, Freyju og Ösp þetta örblogg þar sem ef að þau hefðu ekki suðað hefði það aldrei orðið til.

Eiga fleiri hérna úti mömmur sem verða hreint og beint illar þegar þær taka til? Ok, ég viðurkenni að kannski er herbergið mitt svolítið subbó en fyrr má nú aldeilis vera geðvonskan. Það er hreinlega hægt að finna það á lyktinni þegar mamma hyggur á hreingerningar.

Og eitt próf að lokum (lofa að blogga meira næst). Niðurstöðurnar eru mjög leiðinlegar þar sem hún er hundleiðinlegust :(

drew
Your like Dylan! Your very sweet and funny but u
also have a wild sexy side! Yay go u!


Wich of the 3 Charlies Angels r u??(with pictures)
brought to you by Quizilla

sunnuntaina, kesäkuuta 22, 2003

What is a name?

The name of Valgerdur makes you very idealistic, sensitive, and inspirational. If these qualities are not understood and properly directed through music, art, or other creative expression, you could become jealous and possessive of those close to you. Your feelings are so strong that you are inclined to build your life around certain individuals and become wrapped up in personal love rather than seeking into the deeper truths of life; thus you could suffer losses in your affections and shattered ideals. You are generous and people are drawn to you because of your friendly and sympathetic nature. You lack system and order in your life and will often leave your own duties if someone calls upon you for assistance. When you are inspired and feel happy, life seems so wonderful; but you can be just as depressed and unhappy as well, feeling as if everyone is against you. The weakness of this name could create nervous breakdowns, or disorders related to the nervous system.

Sem ég var að lesa bloggið hjá henni Sunnu nágranna míns rakst ég á þennan nafnagreini. Samkvæmt honum mun ég festa mig við Geir, lemja allar stelpur sem tala við hann og soga úr honum allt líf ef ég hætti ekki verkfræði og byrja að tjá mig í gegnum listina. Einnig er ég í mikilli hættu á að fá taugaáfall. Jæja...dæmið sjálf og endilega segið mér hvað þið fenguð.

maanantaina, kesäkuuta 16, 2003

Til hamingju með að komast inn í kennó Freyja!
Nú get ég farið að huga að barneignum.
You are Trinity-
You are Trinity, from "The Matrix."
Strong, beautiful- you epitomize the ultimate
heroine.


What Matrix Persona Are You?
brought to you by Quizilla

The Greeks were a more relaxed and artistically refined sequel to the civilizations of Mesopotamia.  Yeah you're cool, but it wouldn't hurt to shut up once in a while.
The Greeks were a more relaxed and artistically
refined sequel to the civilizations of
Mesopotamia. Yeah you're cool, but it wouldn't
hurt to shut up once in a while.


What is your ancient civilization?
brought to you by Quizilla

HASH(0x852f1b4)
Congrats, you are Lauren and Bogie! They had a very
Father- daughter complex (in a non incest kind
of way) but they were still healthy. They were
in love and happy. That's all they needed.


Which classic couple would you be a part of?
brought to you by Quizilla

sunnuntaina, toukokuuta 18, 2003

The Dante's Inferno Test has sent you to the First Level of Hell - Limbo!
Here is how you matched up against all the levels:
LevelScore
Purgatory (Repenting Believers)Low
Level 1 - Limbo (Virtuous Non-Believers)High
Level 2 (Lustful)Moderate
Level 3 (Gluttonous)Low
Level 4 (Prodigal and Avaricious)Moderate
Level 5 (Wrathful and Gloomy)Low
Level 6 - The City of Dis (Heretics)Low
Level 7 (Violent)Moderate
Level 8- the Malebolge (Fraudulent, Malicious, Panderers)Low
Level 9 - Cocytus (Treacherous)Very Low

Take the Dante's Inferno Hell Test
Menningarlegt próf








LIVIA

You are the power behind the throne. Rome
would have fallen apart if you hadn't stepped in and saved it from anarchy. You're not above
scheming, lying, and even murdering in order to keep your family in power. You are strong and
determined, but you sometimes regret being born a female. In a world where men have the power, you
are resigned to rule with your husband.


You were portrayed
by Sian Phillips.




Which I, Claudius Character are You? created by
Shiny Objects


Jámms...ég er semsagt aðaltíkin í þáttunum :)

tiistaina, toukokuuta 13, 2003


You are Psychic!


What's Your Magic Power?
brought to you by Quizilla

Hahahhahaha....love to learn já...:)
FLASHBACK
Hver kannast ekki við þvottabrettið á þessum?
http://www.peterandre.com
Ætli hann hafi fallið í eðlisfræði?

mynnd
Thu ert Raymond! Thu lifir godu lifi, att allt sem
hugurinn girnist og allir elska thig. En
stundum langar thig bara ad skrida ofan i
svarta holu og vera i fridi!!!!!


hvada skjareinn thattur ert thu?
brought to you by Quizilla

lauantaina, toukokuuta 10, 2003

Kjörkössum lokað kl. 22:00

1.) Framsókn 0 0%
2.) Frjálslyndir 0 0%
3.) Samfylking 6 30%
4.) Sjálfstæðisflokkur 11 55%
5.) Vinstri grænir 1 5%
6.) Skila auðu 2 10%
7.) Annað 0 0%

Heildarfjöldi: 20

Mjög líklega verða niðurstöðurnar ekkert líkar þessu :)
Spá um úrslit kosninganna

Fyrir nokkrum dögum skar ég mig frekar illa á áróðursbréfi sem ég fékk frá Framsóknarflokknum og fyrst varð puttinn rauður en nú finnst mér hann vera farinn að blána meir og meir. Er puttinn á mér að spá fyrir um úrslit kosninganna eða jafnvel stjórnarmyndun? Nú veit ég ekki en það væri gaman að bera þetta saman eftir kosningar. Annars er Stærðfræðigreiningin búin og því tilefni til hátíðahalda. Sennilega fer eðlisfræðin þá í klessu en það er í orden :)

torstaina, toukokuuta 08, 2003

Ég hef fundið tilgang minn í lífinu



You are the Presidental Barbie! While the rest of the world thinks the middle east is just where America goes to test out bombs, you actually realize it is an important section of the world. What's more, I bet you enjoy taking World Geography!! Politics are important to you. If you are a GOOD Presidential Barbie, you realize that the Green Party sucks.

Ég hef stefnt á þetta frá 5 ára aldri og nú hef ég fengið það staðfest.
Botninum náð

Já, það er ekki hægt að leggjast lægra. Í dag tókst mér að klúðra 3 mínútna núðlum. Það gerist ekki mikið verra en þetta. Hér er svo eitt próf í tilefni þessa:

You are Beef Ramen!!
You are Beef Ramen! You are well liked, and you are
very socially adept and easy to talk to and to
get to know. People appreciate that you are
willing to pay attention to them. You normally
are a hard worker, though social life will
always come first for you.


What Flavor of Ramen Noodles are you?
brought to you by Quizilla

tiistaina, toukokuuta 06, 2003

Atkvæðaveiðar stjórnmálaflokkanna

Pólitíkusar athugið. Ef einhver úr hinum ferska Framsóknarflokki les þetta þá má senda mér fleiri svona ferskar mintur, ég er búin með mínar og verð kannski búin að gleyma þessum vinargreiða ykkar á kjördag, já og helst svona bílatölvuleik líka eins og Reykjavíkurkrakkarnir fengu. Partýóðu Sjálfstæðisfólki bendi ég á að hætta að bjóða í partý og senda frekar eitthvað dót. Það virkar á mun breiðari hóp...það vilja ekkert allir fara í partý með ókunnugum. Gaman samt að fá símtal frá ykkur svona einu sinni í viku. Ungum vinstri grænum vil ég þakka fyrir völundarhússþrautina, sem var mjög kaldhæðin og hægt að fara margar leiðir að markmiðinu. Gott mál. Nú og svo bíð ég bara spennt eftir að fá eitthvað fá Samfylkingarfólki og Frjálslyndum, það er enn hægt að kaupa mig með dóti og fleiri skemmtilegheitum, tilboðið rennur þó út þann 10. þessa mánaðar svo hafiði hraðann á.

Skora á alla að lesa út úr þessu hvað ég hyggst kjósa, ég nefndi flokkinn :)
Enn eitt prófaflóðið

professor x
You are Professor X!

You are a very effective teacher, and you are very
committed to those who learn from you. You put
your all into everything you do, to some extent
because you fear failure more than anything
else. You are always seeking self-improvement,
even in areas where there is nothing you can do
to improve.


Which X-Men character are you most like?
brought to you by Quizilla

Yeees...þetta með mistökin er alveg satt reyndar...alla vega í prófum.

Harvard
Harvard
You're the best -- you know it, as does everyone
else (except for US News and World Report every
few years). You might not be hip, you might not
be pretty, but you're smart as a whip and you
never need to do another impressive thing in
your life.


Which Ivy League University is right for YOU?
brought to you by Quizilla

Hahahah...ég sendi þetta með umsókninni...alveg pottþétt.

arial
Arial - You're pretty normal. That's certainly not
a bad thing, as a lot of people like you.


What Font Are You? (Standard Fonts)
brought to you by Quizilla


Random Fast-Food Mascot


What's Your Personality Type?
brought to you by Quizilla

Mér sýnist þetta vera Freyja þarna á myndinni :)

You are pink. You are in limbo. Not pure and manipulated like white, not impure and noble like red. You are unsure of your real identity, but whatever you chose it to be, you can be it. That is your power. You change everyone you touch, and everyone remembers you. In literature, pink represents the place between heaven and hell. You are the one we will never forget.

What inner color are you?



Sýrupróf...:)




Aldarfjórðungur
Já nú er hann Geiri búinn að lifa í aldarfjórðung og það er ekkert smá! Í stað þess að vera leiðinleg og benda t.d. á að það eru 8 ár síðan hann fékk bílpróf, 11 ár síðan hann fermdist, hann er orðinn alltof gamall til að vera ungur pabbi og hvað Alexander mikli og John Stuart Mill voru búnir að afreka á hans aldri ætla ég að óska honum til hamingju með áfangann. TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ GEIR MINN :D

maanantaina, toukokuuta 05, 2003

Svona þegar ég pæli í því erum við nokkuð líkar
chris
You are CHRISTINA! You know what you want and how
to get it! You wont hang around and you love to
experiment with different fashions!! Good or
bad this is due to the fact u may not own a
mirror due to the your powerful singing voice
breaking them all!


Which music diva are you?
brought to you by Quizilla

lauantaina, toukokuuta 03, 2003

Einbeitingarskortur

Jámms...ég er orðin svo slæm af einbeitingarskorti að ég hef ákveðið að blogga barasta! Þessi próf eru nú meira ruglið.

Annars hef ég ekki verið iðjulaus þó ég hafi ekki verið að læra neitt af viti. O nei! Ég er búin að finna fullt af skemmtilegu dótaríi á netinu. Sumt jafnvel tengt náminu. Það má til dæmis prjóna svona fyrir stærðfræðigreininguna...eykur vafalaust skilninginn, svo er þetta líka töff! Alveg er ég viss um að konan hans Bigga stæ á svona. Þetta hérna er gott fyrir Nauthólsvíkina og hefði nú verið gott fyrir hana Chloe að eiga svona þegar hún hélt það væri verið að taka upp prufu fyrir raunveruleikasjónvarp hahahaha. (Sjá bloggið hans Óttars og tengist síðan við frétt í Fókus) Seinasta og besta prjónauppskriftin er samt þessi hér og ætla ég að prjóna einn svona handa Stebba kalli sem þakklætisvott fyrir Black Adder kvöldið og Tölvunarfræðihjálpina í vetur.

Ég eignaðist líka nýja vinkonu sem heitir Alice, hún er mjög skemmtileg og vel við hæfi að spjalla við hana fyrir Tölvunarfræðina. Ég mæli með því að forvitnir spyrji hana um tilgang lífsins...hún gefur ansi gott svar. (Það þarf að smella á einhvern asnalegan píramída með auga ofan á til að ná sambandi við hana)

Jæja fleira var það ekki í bili, meira af tilgangslausum prjónauppskriftum og rugli næst :)
Prüfungen

I'm a Snow Leopard!

A fluffy snow-cat, you're always able to appreciate a soft bed

and a quiet moment of thoughtful contemplation, though you don't let

this mindset inhibit your social life - a friend to all, you're never too busy

to offer a hug to anyone who may need it.




Sjáðu hvaða týpa þú ert

torstaina, huhtikuuta 24, 2003

Þeir taki þetta til sín sem vilja

Seinfeld
You belong with the gang in Seinfeld! You love
hanging out with your nutty friends and going
through some of the weirdest things anyone
could think of! But hey, you wouldn't trade it
for anything. Good company, good times, and
they make great stories!


What comedy show should you be starring in?
brought to you by Quizilla

Hahahaha...þetta minnir mig óneitanlega á verkfallið...ha krakkar?

tiistaina, huhtikuuta 22, 2003

My norwegian wise guys

Verkfræðin er bara ein stór kaffipása!
Stefán Þór Ragnarsson Thorbergssen

Enginn er verri þó hann vakni.
Geir Þórarinn Þórarinsson Trandum

Það eru svo sniðugir strákar í kringum mig.
Feeling political...




Kolbeinn Óttarsson Proppé. Þú ert jarðbundinn hugsjónamaður, sem kann að
skemmta sér þegar færi gefst.


Taktu "Hvaða frambjóðandi Vinstri - grænna ert þú" prófið






Þessi piltur er alveg ofsalega líkur Jeff Daniels.
Hresst!
Já í tilefni vorsins og prófanna hressti ég aðeins upp á síðuna. Þemað er finnskt eighties en allt sem er annaðhvort finnskt og/eða eighties er að koma í tísku aftur. Ja...eightiesið er alla vega að koma aftur ég veit ekki til þess að finnskt hafi verið í tísku áður...aldrei að vita samt. Úff...vonandi helst þessi dugnaður á morgun þegar ég sest við lærdóminn. Páskarnir hafa verið alltof ljúfir...eintómar bíóferðir og startrek gláp. Mjög töff. En svona í anda Bridget Jones (leiðinlegasta bók í heimi, ágæt mynd samt) ætla ég að taka saman statusinn á áramótaheitunum. Hér koma þau:

1. Ásdísi lofa ég að vera duglegri í leikfimi...2var í viku MINNST nema þegar það eru próf (gildir til ágúst 2003).
Hahaha, þetta gekk nú bara í viku held ég. Ásdís verður að ákveða refsingu.

2. Geir lofa ég að vera duglegri að læra.
Hmm, ég hef nú staðið sæmilega við þetta, nema kannski núna í páskafríinu. Geir fær EKKI að ákveða refsingu.

3. Freyju lofa ég að vera félagslyndari.
Jú, þetta hef ég staðið við að mestu leyti, þó ekki á öllum vígstöðvum. Sósjalæsaði meira að segja yfir mig einu sinni.

4. Ösp lofa ég að hætta naga neglur.
Stóð ekki við þetta. Ösp er búin að ákveða refsingu en ég ætla ekki að gera neitt í því þar sem refsingin mun skaða aðra.

5. Ölmu lofa ég að vera duglegri að skrifa bréf (gildir þar til hún kemur heim).
Ég er ekki alveg viss um þetta. Alma, ég leyfi þér að dæma um dugnað minn.

6. Óttari og Jens lofa ég að vera duglegri að taka til í bílnum.
Stóð við þetta. Squeeky clean :)

7. Palla lofa ég að vera duglegri en hann að taka til í herberginu mínu.
Ótrúlegt en satt, ég tel mig hafa staðið við þetta loforð. Ber helst að minnast heimsóknar til Páls með Sigríði, Stefáni og Geir...þeir skilja sem vilja. Ekki bara pizzakassar á gólfinu



maanantaina, huhtikuuta 21, 2003

Íslenskt próf!
Ég fann þetta fína próf á síðunni hennar Gyðu. Veit ekki hvort hún bjó það til sjálf en það gæti bara vel verið og hefur henni þá tekist vel til. Annars sé ég fram á að rafmagnsverkfræðingadraumar mínir (ahahhaha) verði að engu ef ég fer ekki að drullast til að læra. Vonandi eru margir í sömu sporum og ég...það er betra að þjást í hóp.
BlakeGuiding
Blake Thorpe: Thu ert illgjorn kona sem svifst
einskis til ad koma ser a framfaeri, baedi i
atvinnu og astum! Pabbi thinn er rikur og
voldugur og thu notar sambond hans oft til ad
koma ther a framfaeri. Nuverandi elskhugi thinn
er fyrrverandi elskhugi modur thinnar og
erkiovinur pabba thins! En thad stodvar thig
ekkert!


Hvada Leidarljos karakter ertu?
brought to you by Quizilla

keskiviikkona, huhtikuuta 16, 2003

STÓRMERKILEGT PRÓF




what celebrity feature are you?
mewing.net


og þótt ótrúlegt megi virðast er einmitt vinstra augað mitt hærra en hið hægra. Skuggalegt hvað þessi próf passa öll.
Smá próf
HASH(0x82ea79c)
Physics Major


What undergraduate major are you?
brought to you by Quizilla

maanantaina, huhtikuuta 14, 2003

Úrslit getraunarinnar

Rétt svar var: rauð peysa sem Geir gaf í jólagjöf. Hefði verið nóg að segja rauð peysa en þar sem enginn gat upp á rétta svarinu munu verðlaunin (ef ég verð mér einhvern tímann úti um plakat af söngdívunni) ganga beinustu leið til systur minnar. Aukaverðlaunin eru hins vegar ekki af verri endanum en eftirtaldir munu fá risarís (þú átt það alltaf skilið) við fyrsta tækifæri:

Vinsælasti keppandinn: Bjarnheiður Kristinsdóttir. Stuðningur við íþróttatöskuhugmynd hennar var ótvíræður og telst hún því vinsælust.
Frumlegasta hugmyndin: Systir þín. Geiri kallinn kom með þessa afar frumlegu hugmynd og þar sem hann svaf hjá dómnefndinni eins og hún lagði sig þá var þessi hugmynd hans valin þrátt fyrir að um margar mjööög frumlegar hugmyndir hafi verið að velja.

Ég vil þakka öllum fyrir þátttökuna og við þá sem ekki hlutu verðlaun segi ég bara...það gengur betur næst.

torstaina, huhtikuuta 03, 2003

Getraun vikunnar



Þar sem að Stebbi kallinn tók svona fína mynd af herberginu mínu hef ég ákveðið að búa til smá getraun. Heppinn lesandi sem getur giskað á hvað er neðst í hrúgunni á þessari mynd getur átt von á Eurovision plakati áritað af íslensku söngdívunni Birgittu Haukdal! Þeir sem ekki ná að giska á rétt þurfa þó ekki að örvænta því einnig verða veitt aukaverðlaun fyrir frumlegustu hugmyndina og vinsælasta keppandann. Tekið skal fram að ef enginn giskar á rétt þá munu verðlaunin ganga til systur minnar.


maanantaina, maaliskuuta 24, 2003

The Ultimate Nerdtest


I am the number
2
I am friendly

_

what number are you?

this quiz by orsa

Ætli Geir viti af þessu?
Gay Bear
Gay Bear


Which Dysfunctional Care Bear Are You?
brought to you by Quizilla

kiss my ass2
congratulations. you are the kiss my ass happy
bunny. You don't care about anyone or anything.
You must be so proud


which happy bunny are you?
brought to you by Quizilla

Og svo eitt fyrir Geir :)

You are Artemis, the hunter, totally uninterested
in any sort of physical relationship with
anyone, and you definitely get along with guys
better than girls...in general.


What Greek Deity Are You?
brought to you by Quizilla

Og annað fyrir Stebba og Einar


Captain Jean-Luc Picard.


Which Star Trek Character are you?
brought to you by Quizilla


keskiviikkona, maaliskuuta 19, 2003

Bachelor - Taka tvö

Skjar einn hafði alla íslenska aðdáendur piparsveinsins Arons (þar á meðal mig) að fífli seinasta fimmtudag með því að gefa sterklega í skyn að nú myndi Aron feisa "the most difficult decision of HIS LIFE" þegar hann feisaði ekki einu sinni "his most difficult decision yet" og fór bara með gellurnar í mat hjá mömmu og pabba án þess að þurfa ákveða eitt né neitt. Góð mæting var hérna á Hraunbrúninni þó við værum ekki með rósir og kampavín og voru sannarlega mikil vonbrigði þegar við uppgötvuðum hvernig í pottinn var búið. En við látum ekki deigan síga heldur boða ég annað partý á morgun eftir finnskunámskeiðið. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og styðja sína konu! Ég hef ákveðið að fljóta með straumnum og halda með Helene þó hún sé með ofsalega ljóta rödd en Geir (og margir aðrir) virðast halda að Brooke vinni. Mér finnst mjög grunsamlegt hve margir strákar sem horfa EKKI á þetta eru vel inni í málum. Að loknum þættinum (á föstudag) ætla ég svo að blogga til heiðurs piparsveininum.

Smá netpróf að lokum í tilefni þess að ég hef ekki tekið netpróf í mánuð:

Þetta er rosagott held ég:
entrancing
You have an entrancing kiss~ the kind that leaves
your partner bedazzled and maybe even feeling
he/she is dreaming. Quite effective; the kiss
that never lessens and always blows your
partner away like the first time.


What kind of kiss are you?
brought to you by Quizilla

Jamm...nokkuð nærri lagi held ég:
YOu see the world in Neutral
Neutral:
Harmony and balance is key. You don't look at the
world in a negative or positive way and you'll
never judge or assume a situation- you just
look at the facts. People like you are peaceful
and accepting.


What color do you see the world in?
brought to you by Quizilla

Ég veit ekki hvað þetta þýðir, en efa að 10 mínútur þyki langur tími:
MOD
you're mod!


How can I label you?
brought to you by Quizilla



keskiviikkona, maaliskuuta 12, 2003

Upprisan!
Já bloggið er risið upp frá dauðum. Líklega verða þetta þó aðeins fáeinir dauðakippir og ég lofa ekki skjótum bata þar sem ég hef ákveðið að taka stærðfræðigreininguna fram yfir bloggið :) En...ég hef tvær tilkynningar sem varða félagslíf mitt og kannski ykkar:

1. Á morgun fimmtudag 13. mars verður BACHELORPARTÝ hér í herberginu mínu og allir áhugasamir (stelpur OG strákar) eru boðnir velkomnir. Í boði verður popp og líklega kók eða 7up og fyrstir koma fyrstir fá. Mæting er um 21:30 þar sem ég verð ekki komin heim af finnskunámskeiðinu fyrr. Hins vegar mega þeir örfáu sem þykjast ekki hafa áhuga á Bachelor örugglega fara heim til Geirs að horfa á Gettu betur eða gamlar James Bond myndir.

2. Og meira félagslíf. Laugardaginn 15. mars verður NÖRDAPARTÝ hér í húsinu mínu exclusively fyrir fyrrv. x-ara og eru engir aðrir boðnir velkomnir nema kannski spúsur fyrrv. x-ara. Í boði verður Stebbamömmukaka og mjólk. Mæting er um 8-9 leytið og því miður verður ekki horft á Simpson. Ykkur sem ekki uppfylla inntökuskilyrðin er bent á snókerbarinn hérna rétt fyrir ofan húsið mitt.

Endilega tilkynnið þátttöku hér í commentakerfinu eða bara ekki :)

maanantaina, helmikuuta 24, 2003

Orðsending til Páls Heimis góðvinar míns
1. Ég ætla aldrei að segja þér hvað ég ætla að kjósa í háskólakosningunum og hættu að hringja í mig :)
2. Það er stafsetningarvilla á heimasíðunni þinni :)

lauantaina, helmikuuta 15, 2003

HASH(0x83ff748)
Valla. You are not you...you are me :)


Hver vinanna ertu?
brought to you by Quizilla

Já ég tók mitt eigið netpróf og...viti menn ég var ég...fæstir fatta samt brandarann með Nalla Svarta en til þess þarf að sjá Total Recall.
Mitt fyrsta netpróf

Það hlaut að koma að því. Ég skráði mig á prófavefinn Quizilla.com og bjó til netpróf. Því miður skildu þeir ekki íslensku stafina svo það er á sms-ísku. Árangurinn má sjá hér og tók ég bara þá aðila sem auðveldast var að auðkenna með einhverjum skemmtilegum spurningum.Vona að enginn taki þessu illa en annars berist kvartanir í kommentakerfið. :)
Fyrir Ölmu mína

Victoria Nun-- cause you favorite saying is you
ain't gettin nun


What's your stripper name? (female)
brought to you by Quizilla
Makeover
Já nú er bloggið búið að fá nýtt útlit og munu færslurnar vafalítið aukast að gæðum eftir þessar breytingar. Nýja útlitið er ekki jafnartífartí en þeim mun tæknilegra fyrir vikið. T.d. getur lesandinn breytt um leturgerð og -stærð og eins og það væri ekki nóg þá breytast litinir líka í hvert sinn sem komið er á síðuna! Tæknin er ótrúleg. Svo bætti ég við tenglum á allt helsta bloggfólkið í mínu lífi svo það sé auðveldara að skoða bloggin hjá vinum og vandamönnum. Persónulega mæli ég með að nota Arial og svona u.þ.b. 10 pt letur en þetta er allt voða frjálst. Þá getur verið gott að smella í links open windows :) Jæja ég er farin að læra.

keskiviikkona, helmikuuta 12, 2003

The Ultimate netpróf

Stebbi er snillingur! Hann bjó til tæki sem auðveldar ósjálfstæðum eltikindum komandi kosningar. T.d. fólk eins og ég sem hefur ekki fylgst nógu vel með eða skilur ekki alveg stefnuskrár flokkanna getur tekið þetta próf og viti menn...þú ert komin(n) með flokk til að kjósa! Útkoman kom mér á óvart en Stebbi has spoken:





Þú ert yfir sextugu í anda og opinn í báða enda. Þú kýst því Framsóknarflokkinn og skammast þín ekkert fyrir það!



Hvað kýst þú?





Skora ég á Stefán til að útskýra á blogginu sínu hvernig hann bjó til þetta fína próf þar sem ég hef nokkrar hugmyndir að ágætis netprófum...nú skal taka þessa prófasýki upp á næsta level :) Heill Stefáni.

maanantaina, helmikuuta 10, 2003

Álfar og hobbitar
Já...skv. mjög áreiðanlegum heimildum væri ég Mira Toadfoot frá Frogmorton ef ég væri hobbiti. Finnst mér vegið að tánum á mér með þessu nafni enda hef ég haft minnimáttarkennd útaf þeim frá barnsaldri. Álfanafnið mitt væri hins vegar Failariël Míriel og má hver sem vill reyna að bera það fram. Annars setti Silja mig í hlutverk eins af tröllunum þremur í Hobbitanum þegar hún raðaði 3. F í hlutverk og mun ég því hafa lítil not fyrir þessi hljómfögru nöfn. Mikið hlakka ég til að fara í Greiningu rása prófið á morgun :)

sunnuntaina, helmikuuta 09, 2003

Leti
Svo virðist sem einhvers konar bloggleti eða -leiði hafi gripið um sig í vinahópnum. Sú var tíðin að fólk bloggaði sem það ætti lífið að leysa en nú má sæta tíðindum ef einhver annar en Freyja bloggar og Sigga hefur meira að segja látið af þessum ósóma með öllu. Býst ég fastlega við að því megi um kenna að nýja brumið (er þetta rétt skrifað?) er farið af blogglífinu og skólinn kominn á fullt. Legg ég til að við (þar sem sjálf er ég ekki barnanna best í þessum málum) rífum okkur nú upp úr sleninu og ritum u.þ.b. eina tilgangslausa hugsun eða sögu úr hversdagslífinu á dag. Ég bið ekki um nein stórvirki á andlega sviðinu heldur bara eitthvað smá svo vinir ykkar viti nú hvað er í gangi hjá ykkur. Ef ekki væri fyrir bloggið myndi ég sennilega ekki vita hvort sum ykkar væru lífs eða liðin svo breytinga er þörf. Annars ætla ég að koma með nýjan fídus hérna á bloggið, svokallaðan Bachelor fídus en þá gef ég smá glimpse af komandi bloggum sbr. auglýsingahléin í Bachelor á Skjá einum. Mun ég hafa sama hátt á og þeir Bachelor menn og alltaf gefa alltaf í skyn miklu skemmtilegri og krassandi blogg heldur en koma síðan í alvöru. Býst ég þó við að þetta endist ekki í viku.

Coming up on Sögur úr sjávarþorpi
Klámvæðingarblogg, kvenréttindablogg, Bachelorblogg og status á áramótaheitum.

ok þetta eru kannski ekkert voðalega krassandi blogg en greining rása steikir hausa.
Tileinkað einu teknótæfunni og housepungnum sem ég þekki

I am 22% Raver

Have I even been to a rave? I'll go home. I am a Loser. I suck. Actually, I am probably just a normal person taking this test and don't know why.

Take the Raver Test at fuali.com

Persónulega fagna ég þessum niðurstöðum og hefði helst viljað fá færri prósentustig enda tel ég það vera sömu týpuna sem skorar hátt á svona prófum og bloggar leynilega án þess að segja sínum nánustu frá því ;) Já og Freyja...takk fyrir matinn...hann var góður.